Fjölmiðlar
skipta miklu máli á Netinu og hafa þeir nýtt sér vel þá möguleika sem að
það býður upp á. Stærri fréttamiðlar eru með fréttavefi
þar sem þeir keppast um að verða fyrstir með fréttir af stórviðburðum
en einnig hafa þeir nýtt sér nýrri tækni eins og SMS til að koma fréttum
til skila. Vefir á vegum dagblaða
bjóða oftast upp á fréttir á textaformi með myndskreytingum en
textinn er oft styttir en í hefðbundu dagblaða formi. Venjulega er sérstakur
ritstjóri að vefjum dagblaða og
efnistök oft ólík.
Vefir á vegum útvarpsstöðva
bjóða einnig upp á fréttir á textaformi en aðal áherslan er á að
notandinn geti hlustað á efni stöðvanna
í beinni útsendingu og einnig hlustað á eldri útsendingar t.d. fréttir. Tæknin
er þá nýtt til að útvarpa í gegnum tölvuna með aðstoð vefsíðu og spilara (Media
Player™ eða Real Player™).
Að sjálfsögðu þarf Nettengingin
að vera nógu öflug til að hljóðstraumurinn komist vel til skila. Hætt er
við því að Net skóla verði ofurliði borið ef margir nemendur ætla að
hlusta samtímis á útvarp í gegnum Nettenginu skólans. Því er rétt að
láta það vera nema slíkt sé beinlínis verkefni í náminu.
Sjónvarpstöðvar
nýta sér einnig Netið og er hægt að horfa á efni margra þeirra í gegnum
tölvu ýmist í gegnum Netið (símalínu) eða með sérstöku sjónvarpskorti
og loftnetstengingu. Til að sjónvarpssending sé viðunandi í gegnum Netið
þarf öfluga tenginu því að gagnamagnið er mikið þegar verið er að
senda bæði hjóð og mynd.
Í dag eru öflugar rannsóknir og
þróun til finna nýjar og hraðvirkari leiðir til að senda stórar gagnaskrár
sem innihalda texta, myndir, hreyfimyndir og hljóð yfir Netið á sem fljótvirkastan
hátt. Verið er að þróa margskonar þjöppunaraaðferðir
til að minnka umfang gagnanna.