Leitaræfingar

Nú ætlar þú að kynna Ísland fyrir umheiminum á heimasíðu þinni með því að vísa á skemmtilegar myndir frá Íslandi. Þú setur þér það markmið að vísa á fimm góðar myndir og ætlar að láta leitarvélar hjálpa þér að leita að þeim.

Leitaðu nú að eftirfarandi leitarorðum og skrifaðu hjá þér, t.d í ritvinnslu, hvaða leitarvél þú notar í hvert skiptið, hversu margar síður fundust og hvaða síðu þú ætlar að nota. Afritaðu endilega frá vefskoðara í verkefnisskjalið. (Gott er að skyggja textann og ýta á ctrl-c til að afrita og ctrl-v til að líma inn)

Leitarorð Hvaða leitarvél notuð Niðurstaða, góð/léleg Besta síðan sem fannst
Ísland      
Iceland      
Ljósmyndir frá Íslandi      
Icelandic photos      
"Ljósmyndir frá Íslandi"      
"Ljósmyndir frá Íslandi" or "Icelandic photos"      

Hvaða ályktun getur þú dregið af þessum niðurstöður? Reyndist t.d. ein leitarvélin betur en önnur eða hvað leitarorð reyndist best. 

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2000