Bókasöfn og skjalasöfn

Ógrynni upplýsinga má finna á Internetinu en oft er óvíst hvort hægt er að teysta upplýsingunum eða ekki. Bókasöfn og skjalasöfn sem eru á vegum formlegra stofnana eru yfirleitt með sérfræðinga og eftirlit með gögnunum þannig að fræðimenn og áhugamenn treysta venjulega upplýsingunum frá slíkum stöðum. 

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn eru með þjónustur sem kallast Gegnir þar sem eru skráðar bækur, fræðibækur og almennar af háskólum í landinu og Greinir þar sem háskólarnir skrá greinar úr fjölmörgum tímaritum. Bókasöfn eru yfirleitt þær stofnanir sem eru líklegastar til þess að hafa réttar og áreiðanlegar upplýsingar um gagnasöfn og bókasöfn og auk Landsbókasafns Íslands má líta við hjá Borgarbókasafninu og skoða upplýsingaþjónustu þeirra. 

Menntamálaráðuneytið hefur samið fyrir hönd Íslands að fjölmörgum rafrænum gagnasöfnum í heiminum.  Þau eru á vef sem kallast hvar?is þetta er gífurlega merkilegt framtak því allir Íslendingar sem tengjast þessum gagnasöfnum af tölvum á Íslandi fá þar ókeypis aðgang. Má segja að þetta framtak sé eitt það merkasta sem tengist upplýsingatækni á Íslandi. Þarna geta allir sótt sér þekkingu og fróðleik en fræðimenn og námsmenn hafa þarna ótrúlega mikla möguleika á að ná í efni tengt viðfangsefnum sínum. 

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001