Póstlistar


Póstlistar eru algengir þegar fyrirtæki, stofnun eða samstarfsfólk vill senda upplýsingar, fréttir eða annað á ákveðinn hóp manna sem venjulegast gerist áskrifandi að honum sjálfur annað hvort með tölvupósti eða skráningu af vef og þá venjulega staðfestingu úr tölvupósti um að netfangið sé gilt og þangað eigi að senda bréf sem berast á póstlistann. Einn algengasti póstlistahugbúnaður á Netinu er s.k. listserv sem er framleitt af L-Soft fyrirtækinu. Erfitt er að finna lista yfir alla póstlista sem eru í gangi en til dæmis má finna póstlista sem eru hýstir í Háskóla Norður-Dakóta á lista og skoða þar hversu margir eru áskrifendur og fá alskyns upplýsingar. 

Til að gerast áskrifandi að Listserv póstlista er alltaf sama aðferðin, hún er ekki ósvipuð á öðrum þjónustum s.s. majordomo og listproc og því verður farið stuttlega í hvernig það er gert:

Til að gerast áskrifandi er sent bréf til LISTSERV forritisins með setningunni:

subscribe <nafn póstlista> <nafnið þitt>

Nafnið á póstlistanum er þá vitað og síðan er sett eigið nafn. Athugið að það er ekki sett netfang því það kemur sjálfkrafa með tölvupóstinum. Mikilvægt er að hafa ekki fót undir bréfum því þá reynir forritið að túlka allt sem í honum stendur og þá koma villuboð til baka.

LISTSERV forritið er ævinlega hýst á einhverjum netþjóni og netfang þjónustunnar byggist á því. Til dæmis er Kidlink samskiptaforritið hýst á tölvum í Háskólanum í Norður Dakóta og ef þú vildir gerast áskrifandi að Kidlink póstlistanum sem er n.k. fréttabréf Kidlink þá er bréfið sent til:

listserv@listserv.nodak.edu

og ekkert í bréfinu nema:

subscribe kidlink Lára Stefánsdóttir

ef við gefum okkur að hún vilji vera áskrifandi. Stuttu síðar svarar forritið og gengur úr skugga um að móttakandinn sé réttur og óskar staðfestingar á að áskriftin eigi að fara í gang. Því bréfi er venjulega svarað einungis með bókstöfunum OK

Til að hætta áskrift er síðan sent bréf á sama stað og ekkert í bréfinu nema:

signoff Kidlink

Bréf frá póstlistanum koma síðan frá netfanginu kidlink@listserv.nodak.edu og ef áskrifandinn gæti sent bréf á þann póstlista þá myndi hann senda á það netfang. En þessi póstlisti er varinn þannig að fáir geta sent á hann til að tryggja að það fari ekki allt of mikill póstur til lesenda heldur bara fréttir frá Kidlink.

Hægt er að stilla póstlista sem maður er áskrifandi að á ýmsa vegu og þá er best að senda bréf til forritsins listserv@listserv.nodak.edu með skipuninni:

help

þá koma leiðbeiningar til baka.

Póstlistar geta verið mjög þægilegir fyrir fólk að vinna saman þannig fá allir póst sem sendur er á póstlistann og ekki þarf að muna netföng allra sem eiga að fá póst. 

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001