Siða- og
vinnureglur Netsins - Verkefni 1
Kynntu þér umgengnisreglur sem gilda í þínum skóla bæði hvað varðar umgengni um tölvuver eða tölvustofur og um tölvunotkunina sjálfa. Athugaðu að sömu reglur gilda í skólanum þínum um fartölvunotkun þína sem aðrar tölvur innan skólans þegar þú hefur tengt fartölvuna staðarneti skólans eða Internettengingu skólans.
Svaraðu síðan eftirfarandi spurningum:
Skilur þú allar þessar reglur?
Finnast þér þessar reglur sanngjarnar og auðvelt að fara eftir þeim? Hvers vegna? Hvers vegna ekki?
Skilur þú af hverju þessar reglur voru settar?
Spurðu kennara eða tölvuumsjónarmann ef þú skilur ekki einhverja reglu eða áttar þig ekki á því hvers vegna einhverjar reglur eru settar.
Ræddu þessar spurningar við sessunaut eða á póstlista eftir því sem kennarinn leggur fyrir.