Upphaf netsins virðist mega rekja til háskóla í Bandaríkjunum og bandaríska varnarmálaráðuneytinu á sjöunda áratugnum. Þetta net var kallað ARPANET (Advanced Research Projects Agency Network). Á síðustu árum hefur orðið mikil aukning í útbreiðslu og notkun netsins sem helst í hendur við lægra verð á tækjabúnaði sem til þarf og áhuga seljanda vöru á að auka viðskiptin. Til að geta notað internetið þarf að hafa aðgang að tölu sem er í símasambandi við þjónustufyrritæki, miðlara, sem sér um að tengja viðkomandi, biðlara, við veraldarvefinn. Á netinu er síðan hægt að skoða heimasíður, senda og taka við pósti og fara á spjallrásir svo eitthvað sé nefnt. Orðið Netið er notað yfir tölvunet sem tengast með samskiptastaðli sem kallast TCP/IP. Allar tölvur sem skilja þennan samskiptastaðal geta haft samband sín á milli.
Netið hefur breytt samskiptamöguleikum og aðgangi að upplýsingum. Möguleikar til að senda tölvupóst, taka þátt í ráðstefnum, senda inn spurningar og svör breytir aðgangi að þekkingu annarra. Sífellt er verið að setja inn nýjar upplýsingar á netið en auðvitað þarf að skoða síður með gagnrýnu hugarfari til að meta hvort þar er á ferðinni gagnlegar og réttar upplýingar eða ýkjur einar. Í raun má segja að Netið sé upplýsingaveita.
Í dag er sífellt verið að þróa nýjar aðferðir til að tengja saman tölvu, síma og Netið og nú þegar er hægt að senda tölvupóst yfir í farsíma. Nýjungar koma fram í hverjum mánuði og er um að gera að fylgjast með og sjá hvort við getum nýtt okkur þessar breytingar til góðs.
Orð sem gott er að kannast við eru:
e-mail er tölvupóstur,
HTML er forritunarstaðall fyrir
vefsíður,
Irc er spjallrásir,
Fttp er skrárflutnigs kerfi
Usenet er fréttaþjónusta,
WWW-
veraldarvefuinn,
Póstlistar er þjónusta á
netinu þar sem notendur eru paraðir saman og fá allir sama póstinn.
Telnet er gamaldags tenginsg við netið sem er mikið
notað á bókasöfnum.
ISDN er hraðvirk að ferð til að tengjast
Netinu
Modem er tæki sem er notað til að
tengja tölvu við símkerfið til að fá tengingu við Netið
Ítarefni:
| Efnisyfirlit | Adam Óskarsson. Verkmenntaskólinn á Akureyri |
| Er Internetið að bylta símamarkaðnum? | Netsíminn, oskar@skima.is |
| Fróðleiksmolar um Internetið | Íslenska menntanetið |
| Internetið | Verzlunarskóli Íslands |
| Internetið | Bókasafn Vestmannaeyja |
| Internetið - byrjendur | Íslenskur landbúnaður |
| Internetið með Netscape | Ragnar Geir Brynjólfsson. 1999. Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi |
| Saga Netsins og vefsins | Web Developers, Virtual Library |
| Saga og uppbygging Internetsins | Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi |