TCP/IP er skammstöfun á Transmission Control Protocol/Internet Protocol sem er samskiptastaðall Internetsins. Það þýðir í stuttu máli að það er til staðall um hvernig á að senda stafræn gögn milli móðurtölva sem tengdar eru e.k. símalínum. Hver móðurtölva getur talað við aðra og þannig flytjast gögn frá einu heimshorni til annars með því að hoppa milli tölva þar til áfangastað er náð.
Móðurtölvurnar verða að skilja hver aðra, vita hverju þær eiga von á og hvað þær þurfa að senda til að næsta tölva skilji það sem sent er. Þess vegna þarf að vera til samskiptastaðall eins og TCP/IP. Sumum finnst nafnið flókið, það hefði verið hægt að velja aðferðinni annað nafn en skammstafanir hafa ævinlega þótt skemmtilegar í upplýsingatækni og víðar og því hlýtur þessi algengi samskiptastaðall svo óþjált nafn.
Í rauninni er TCP/IP samansett úr nokkrum stöðlum og má hér nefna nokkra:
IP sem meðhöndlar gagnaflutning milli tveggja móðurtölva
TCP sem stjórnar gagnaflutningi milli forrita (application)
UDP sem líka stýrir gagnaflutningi milli forrita en er ekki eins flókið og áreiðanlegra en TCP
ICMP sem flytur villuskilaboð og töluleg gögn um netumferð
Fyrir þá sem vilja vita meira má líta á: