Hugbúnaður (software)

Hugbúnaður eru forrit og skjöl. Forrit geta verið stýrikerfi, bókhaldsforrit, leikir, myndvinnsluforrit eða ritvinnsla. Til hugbúnaðar teljast líka stefjur og reklar sem eru hugtök sem almenningur er ekki vanur. Stefja (procedure) er undirforrit og því ætti kannski að líta svo á að hún sé einfaldlega forrit en stundum standa stefjurnar stakar og forritin kalla í þau utanfrá og þá er mikilvægt að átta sig á að það þarf meira en grunnforritið til að forritið vinni rétt. Reklar (drivers) eru forrit eða forritshlutar sem stjórna t.d. tækjum (t.d. prentara) og öðrum forritum. Einhverjir kannast e.t.v. við að hafa keypt sér prentara, setja hann í gang en engan vegin er hægt að fá hann til að prenta eins og eðlilegt má telja. Þá er líklegt að í tölvunni sé ekki sérstakur rekill, eða hann ekki rétt uppsettur, sem passar bæði því stýrikerfi sem er í tölvunni til að tala  við þennan tiltekna prentara.

Markmiðið með þessum pistli er ekki að lesandinn skilji hugbúnað sem heild heldur fyrst og fremst hugtakið og hvað í því felst.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2002