Vélbúnaður (hardware)
Þó
við lítum kannski ekki á tölvur, prentara og mýs sem vélar þá flokkast þetta
allt sem "vélbúnaður". Eiginlega má skilgreina vélbúnað sem tölvuna sjálfa og
öll tæki sem hægt er að tengja henni og láta gera eitthvað. Semsagt
áþreifanlegur búnaður upplýsingakerfis eða hluti hans. Tölvan sjálf er alla
jafna miðpunktur vélbúnaðarins og önnur tæki tengjast einni eða fleiri tölvum.
Fylgitæki eða jaðartæki eru tæki sem hægt er að tengja við tölvu og tölvan getur átt samskipti við. Þetta geta verið lyklaborð, prentarar, mýs, skannar og margt fleira. Oft eru þessi tæki flokkuð í inntaks- og úttakstæki. Sumir vilja fremur tala um ílags- og frálagstæki en ég kann betur við það fyrra.
Inntakstæki (ílagstæki) er þá tæki sem tölvan
sækir gögn til s.s.

Úttakstæki (frálagstæki) er síðan tæki sem tölvan
sendir upplýsingar til s.s.
Síðan eru til dæmis diskdrif bæði inntakstæki þ.e. þegar lesið er af diski og úttakstæki þegar skrifað er á disk.
Stundum telja menn að helsti kostnaður við upplýsingatækni sé tilkominn vegna vélbúnaðar en það er ekki alls kostar rétt. Hugbúnaður getur kostað talsvert og einnig viðhald, umsýsla, umsjón og allt utanumhald um tölvukerfi.