Verkefni 4

Myndir og tenglar

Ef þú hefur aðgang að stafrænni myndavél þá skaltu fá einhvern til að taka af þér mynd en ef þú hefur aðgang að skanna þá getur þú líka skannað inn mynd af þér. Vistaðu myndina á sama stað og textann úr verkefni 3. Athugaðu leiðbeiningar um skönnun ljósmynda og töku á stafrænar myndavélar. Mynd af einstaklingi á vefsíðunni er skemmtileg en aðgættu að sumir gætu verið viðkvæmir fyrir því að hafa myndir á vef og ef þú ert undir lögaldri þá er  skynsamlegt að spyrja foreldra þína hvort það sé í lagi þeirra vegna að mynd af þér sé á vefnum.

Á vefsíðunni getur þú líka tengt í efni frá öðrum og þarf þá að passa að geta heimilda svipað og gert er í ritgerðum t.d. fengið af vefsíðu hjá Jóni Jónssyni og hafa síðan krækju á síðu Jóns. Efni frá öðrum eru oft myndir og um þær gilda auðvitað höfundaréttarlög eins og um texta. Það þýðir að ekki má nota myndir frá öðrum nema geta þess hver er höfundur myndarinnar og oft þarf að greiða höfundi fyrir afnot af myndum. Nauðsynlegt er að láta höfund mynda vita ef nota á mynd hans og fá hjá honum leyfi. Undantekningin er ef mynd er tekin af síðu þar sem stendur að leyfilegt sé að taka myndirnar. En rétt er að tengja í þá síðu til upplýsingar.

© Ásrún Matthíasdóttirr Lára Stefánsdóttir 2001