Verkefni 6

Sækja myndir á Netið

Nú skaltu nota leitarforrit sem þú finnur á Netinu, t.d. http://ismennt.is/leit, eða http://www.leit.is. Notaðu leitarorðið Clip Art til að finna skemmtilegar myndir sem þér finnast lýsandi fyrir þig og þín áhugamál. Leitaðu líka að mynd til að nota fyrir netfangið þitt t.d. mynd af póstkassi eða mynd af bréfi. Mundu að sama gildir um myndir og texta, allt sem þú setur á vefinn er á þína ábyrgð og má ekki vera óviðeigandi og auðvitað verður að virða höfundarrétt. Hægt er að vista myndir með því að hægrismella á þær með músinni og velja Save. Vistaðu myndirnar á sama stað og efnið sem þú gerðir í verkefnum hér á undan

Ef skólinn þinn eða þú er með leyfi fyrir Microsoft ClipArt™ getur þú notað það safn. Stundum er safnið takmarkað sem er á tölvunni þinni en þá má velja "Clips Online" og finna mikinn fjölda mynda með leitarorðum eða í myndaflokkum.

Nú ertu komin með þitt efni til að setja á vefsíðu en oft viljum við líka hafa krækjur (slóðir, URL) á aðrar vefsíður sem að fjalla um svipað efni eða okkur finnst áhugaverðar. Á forsíðu er ágætt að setja 8 - 10 krækjur en á undirsíðum er ágætt að hafa 3 - 5 krækjur. Ef þú ert með mikið safn af krækjum sem þú hefur safnað þá er best að setja þær á sérstaka vefsíðu.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001