Verkefni 7

Setja inn tengla á vefsíðu

Hvaða tengla vilt þú hafa á þinni síðu? Fyrst skaltu finna slóðina að heimasíðu skólans það er góð siðvenja að hafa alltaf nafnið þitt og skólann neðst á hverri síðu þannig að lesandinn viti hver skrifaði síðuna og að þú sért nemandi í þessum skóla. Best er að nota afritun (Edit/Copy og Edit/Paste) til að afrita slóðina yfir í skjalið þar sem þú vilt nýta slóðirnar, þannig kemur þú í veg fyrir ritvillur í vefslóðum. Gott er að prófa vel allar slóðir sem þú tengir í þannig að þú sért viss um að þær virki. Síðan er gott að athuga þær öðru hvoru því vefsíður geta horfið eða farið annað.

Með leitarvélum getur þú fundið síður sem tengjast áhugamálum þínum. Finndu 3 - 5 slóðir sem þú vilt benda á frá þinni síðu og afritaðu þær yfir í skjalið. Mundu að vista.  

Hugmyndir að vefsíðum:

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001