Þegar vefsíða er hönnuð eru mörg atriði sem þarf að hafa í huga. Það er ekki bara útlitið sem skiptir máli, innihaldið þarf einnig að vera áhugavert og notukunarmöguleika síðunnar skipta sköpum. Þegar notandinn opnar síðuna þarf hann strax að sjá hvað hún hefur upp á að bjóða. Notandinn þarf að hafa eitthvað að gera á síðunni t.d. lesa, skoða, senda póst, svara spurningum, velja o.fl. Hann á ekki að þurfa að leita og skruna fram og til baka til að vita hvað síðan bíður upp á. Það er margt sem þarf að hafa í huga þegar síða er hönnuð en regla númer eitt er: samræmi og einfaldleiki
Það þarf að hanna upplýsingarnar, hanna sjálfa vefsíðuna, og hanna útlitið.
Þegar við hönnum upplýsingarnar þá erum við að hugsa um
- Markmið: Hvert á að vera þema, efni, vefsíðunnar? Á síðan að vera upplýsandi eða eingögnu auglýsing? Ætlum við að koma ákeðnum boðskap á framfæri eða er bara verið að selja vöru? Markmið síðunnar þufa að vera skýr áður en hönnunin hefst.
- Markhópur: Fyrir hverja er þetta? Erum við að hugsa um börn, unglinga eða fullorðna? Ef notendurnir eru afmarkaður hópur þá þarf að skoða hvernig best er að ná til hópsins. Þegar síðan á að vera almenn eðlis, fyrir breiðan hóp notenda, þá þarf að hafa það í huga frá upphafi.
- Efni: Er efnið til? Þarf að leita að efni? Þarf að semja, búa til, efni? Á vefsíðu gilda sömu reglur og í heimildaritgerð, við tökum ekki efni frá öðrum og gerum að okkar. Ef við ætlum að nota efni frá öðrum þá þarf að geta þess og jafnvel fá leyfi höfundar eða einfaldlega vísa í efni frá öðrum. Best er að láta höfund síðu vita ef þú ætlar að vísa í síðuna.
- Framsetning á efni: Hægt er að setja efni fram á ýmsa vegu t.d. með texta, myndum, hljóði og kvikmyndum. Spurningin er hvað hentar þínu efni og þínum markhóp. Einnig skiptir máli hvernig efninu er raða upp, eftir hvaða leiðum er hægt að fara í gegnum vefinn. Gott getur verið að riss upp hvernig hægt er að fara í gegnum vefinn.
- Tæki: Hvað tæki á að nota? Hefur þú aðgang að forritum til verksins og kanntu á þau eða þurfa nokkrir að vinna saman að verkefninu?
- Skipulag: Hver gerir hvað? Eftir því sem vefurinn er viðameiri því fleiri þurfa að koma að verkinu.
- Áætlun: Tími og kostnaður. Gott er að setja sér tímamörk varðandi megin vinnuþætti t.d. undirbúning, úrvinnslu og frágang á vefnum og ekki má gleyma kostnaðinum. Þarf t.d. að kaupa myndir til að nota á vefnum eða kaupa svæði hjá þjónusutaðila til að geyma vefinn.