Verkefni 3
Hanna útlit vefs
Þú átt að hanna síðu fyrir hjólreiðaklúbinn Spólverkið.
Nefndu fimm atriði sem þú vilt hafa á forsíðu klúbbsins.
Nú er komið að því að hanna útlit á sjálfar
síðurnar í vefnum.
- Stíll verksins: Nauðsynlegt er að hafa
ákveðin stíl á síðunum til að notandinn viti að hann er að skoða
sama vefinn. Hægt er að nota liti til að afmarka mismunandi efnisþætti
og halda t.d. sama litnum á öllum síðum sem fjalla um sama efni.
- Ákveða þarf grunn að útliti: Hér þarf
t.d. að ákeða leturstærð, leturlit, bakgrunn, ramma, myndir o.fl.
Þessi atriði fara gjarnan eftir markhópnum og efninu og því þarf að
vera búið að átta síg á því áður en hér er komið sögu.
- Stilla upp hnöppum og tækjum: Miklu máli
skiptir að ákveða heildarútlit á síðunar t.d. hvar á hnappurinn
til að komast til baka á aðalsíðuna að vera. Ef að engin regla er
að uppröðun á síðunum þá verður notandinn ruglaður og nennir
ekki að skoða síðurnar. Það þarf einnig að skoða hvernig texti
og myndir spila saman og hvernig notandinn getur sett hljóð af stað
ef það er notað. Felstir vilja geta valið um hvort þeir hlusta á
hljóð eða ekki og því þarf að vera skýrt hvernig kveikt er á
hljóði. Sama er að segja um myndskeið, það þarf að vera einfalt
að setja þau af stað.
- Endurskoða verkið: Í raun er góðri
vefsíðu aldrei lokið. Hönnunin verður eins og spírall, við förum
fram og til baka, breytum og bætum og einnig þarf sífellt að viðhalda
efninu og passa að allar krækjur virki. Auðvitað fer það eftir
efni síðunnar hversu mikið tilefni er til að bæta og breyta en hætt
er við að síða sem aldrei breytist rykfalli.
© Ásrún
Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir
2001