Verkefni 3

Eigin vefsíða

Skrifaðu nú litla lýsingu á sjálfum þér þar sem fram kemur m.a. nafn, fæðingarár, skóli, heiti áfanga/námskeiðs sem þú er að vinna verkefnið í og áhugamál þín. Ef þú vilt getur þú látið fleiri atriði fylgja t.d. heimilisfang og síma en mundu að það sem fer á Netið undir þínu nafni er á þína ábyrgð og því þarf að vanda textann og virða almennar kurteisisvenjur og forðast allan dónaskap. Vistaðu textann þegar hann er tilbúinn.

Gaman er að hafa myndir á vefsíðu og ef við höfum aðgang að starfrænni myndavél þá er einfalt að taka myndir til að setja á vefsíðu.. Einnig er hægt að skanna inn myndir eða teikna myndir. Til eru margar gerðir af mynd­vinnsluforritum þar sem hægt er að vinna með myndir, breyta og bæta, en oftast er einnig hægt að teikna. Myndir sem settar eru á vefsíðu þurfa að hafa endinguna .gif eða .jpg

Þar sem vefsíðan er aðgengileg öllum væri sniðugt að setja hana á ensku og dönsku líka ef tími er til.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001