FrontPage™ - útlit

Bakgrunnur
Bakgrunnur er stilltur með því að fara í valkostinn Format - Background eða að ýta á hægri músarhnapp og fara í Page properties og smella á flipann Background.

Velja má lit með því að fara í neðri hluta valgluggans og setja inn lit, tilbúinn, úr litaspjaldi eða slá inn styrkleika litanna þriggja sem byggja upp alla liti í tölvuskjá þ.e. rautt, grænt og blátt.

Algengt er að velja mynd í bakgrunn og þá er mikilvægt að velja ekki þunga mynd því slíkt getur hægt á vefnum. Einnig þarf að hafa í huga hvort auðvelt er að setja efni ofan á bakgrunninn. Dökkur bakgrunnur getur verið erfiður, kannski kemur hann til dæmis vel út á vef en erfitt að prenta út ef einhvern langar til þess.

Bakgrunnsmyndir má fá víða en gætið þess vel að brjóta ekki höfundarrétt. Þegar fólk hefur keypt FrontPage™ forritið eða Microsoft Office™ þá fylgir ClipArt™ sem er ágætt og möguleikarnir gríðarlega miklir sé flett upp í því sem liggur á vefnum þar sem efnið er sífellt endurnýjað.

 

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001