FrontPage™
er sniðugt að því leyti að það heldur utan um vef eins og eina heild. Maður
getur búið til fleiri en einn þar sem hver vefur væri um algerlega aðgreint
efni. Oftast notum við bara einn vef en engu að síður getur þetta verið gagnlegt
því við horfum á vefinn okkar sem eina heild.
Til að búa til nýjan vef er valið: File - New - Page or Web og þá birtist myndin hér til hægri einmitt í forritinu til hægri (smellið til að sjá í fullri stærð). Þarna sjáið þið valkostinn "Empty Web" og það er einmitt aðferðin til að búa til nýjan tóman vef.
Í FrontPage™ eru til vefsnið eða s.k. "Web Site Templates" og ef þau passa við það sem á að fara að gera er hagkvæmt að velja það einmitt. Þetta gerist þó ekki ýkja oft og því líkegra að valinn sé tómur vefur.
Forritið býr til sjálfkrafa möppu fyrir myndir "images" og aðra möppu fyrir "private" sem er eitthvað sem við viljum geyma en ekki birta á vef að svo stöddu. Þetta er hagkvæmt þegar verið er að búa til vef sem birtist sjálfkrafa og þá allt sem á honum er hvort sem okkur líkar betur eða ver. Þá má geyma í möppunni "private" eitthvað sem við viljum ekki að birtist að sinni. Þetta hef ég hinsvegar ekki notað nokkurn hlut en einhverjum gæti efalaust þótt þetta gagnlegt.
Þegar
smellt er á þetta birtist gluggi (sjá til vinstri, smellið á myndina til að sjá
í fullri stærð) þar sem hægt er að velja staðsetningu vefsins á eigin diski ef
það á við. Athugið að stundum vistast vefur á ákveðið netsvæði og þið þurfið að
spyrja netstjóra hvar hann á að vera eða vefstjóri býr til vefinn í upphafi og
gefur ykkur aðgang að honum. Þegar verið er að vinna með eigin tölvu og flytja
síðurnar með forriti yfir á miðlara er vefurinn vistaður á C drifi. Gætið vel
að því hvar vefurinn liggur á C drifinu til að þið finnið síðurnar þegar þið
þurfið að flytja yfir á miðlarann sem birtir síðurnar á
vef. Hér set ég vefinn undir C:\vefur og kalla
hann minn og þá verður til vefur sem birtir möppusvæðið sitt svona (sjá
mynd til hægri). Takið eftir að forritið birtir í efstu bláu línunni
staðsetninguna á vefnum (C:\vefur\minn) sem og í efstu línu
skjalalistans. Tvær möppur verða til "images" og "private", þið
getið endurskírt möppuna "images" í "myndir" ef þið viljið og best
að gera það strax þannig að ekki skapist ruglingur síðar þegar verið er að
flytja gögnin á miðlara ef það á við. Einnig geta tilvísanir ruglast síðar þegar
verið er að breyta.
Nú er þá ekkert annað að gera en að búa til nýja síðu með File - New - Page or Web en í þetta sinn velja Page til að fá nýja síðu. Gætið þess að hún heiti index.htm þar sem það er staðlað heiti á fyrstu vefsíðu hvers vefs (fleiri möguleikar eru fyrir hendi en ég sting upp á þessum). Þá er komið að því að setja upp útlit og þá er ágætt að lesa næstu upplýsingar.