Þegar mynd er komin inn á síðu er hún ekkert endilega á þeim stað sem við vildum gjarnan hafa hana. Til eru nokkrar leiðir til að stilla af myndir:
Smella
á myndina, síðan á hægri músarhnapp og velja eigindi myndarinnar ("picture
properties") þá birtist myndin sem er hér til hægri (smellið á hana til að
stækka) þegar flipinn "apperance" er virkur. Þarna er hægt að stilla
myndina af með flýtivalsgluggunum á miðju, til hægri eða vinstri. Einnig má
nota fleiri stillingar með því að velja "alignment" flipann.
"Horizonal spacing" og "Vertical spacing" er stilling á
hversu autt svæði á að vera lárétt eða lóðrétt við hlið myndarinnar. Venjulega
er þetta nokkuð laglegt á þess að gera nokkuð. Síðan má setja ramma
"border" utan um myndina ef áhugi er fyrir því.Síðan getur verið skemmtilegt að láta texta birtast þegar mús fer yfir mynd til frekari skýringar. Þá er flipinn "general" valinn og þar má finna valkostinn "text" setja þar texta til skýringar sem birtist á vefsíðunni þegar mús er yfir myndinni. Þið getið prófað að setja músina yfir myndina hér á síðunni og sjá hvað gerist.
Stundum er nauðsynlegt að hafa myndir stærri en fallegt
er
á vefsíðu eins og t.d. á þessari síðu. Þá er búin til s.k. "thumbnail"
eða smækkuð mynd sem má smella á til að sjá stærri myndina. Ef ekki er þörf
fyrir að líta á myndina er hægt að sleppa því og þá hleðst síðan inn hraðar. Í
FrontPage er þetta einkar þægilegt því ekki þarf að gera annað en smella á
myndina og síðan á táknið hér til hliðar. Gætið vel að því að til verða tvær
myndir, ein lítil og ein stór. Sú litla ber venjulega heiti þeirrar stóru og
síðan "small" fyrir aftan.

Stundum
veljum við mynd sem passar ekki við bakgrunninn. Þessi vefsíða er hvít og því
passa fleiri myndir en ef bakgrunnurinn er t.d. blár og bakgrunnur myndanna er
hvítur. Þetta getur orðið fremur ljótt. Þetta er þó einfalt að laga í FrontPage
(hljómar eins og auglýsing ekki satt???) Þó það séu hálfgerð drottinssvik að
hafa hund bleikan þá var þetta mynd sem passar verkefninu. Smellt er á myndina
akkúrat á þann lit sem á að gera gegnsæjan (t.d. myndina með bláa bakgrunninum
hér vinstra megin) þá er ýtt á bláa litinn og síðan á táknmyndina
með
bláa blýantinum. Þetta virkar hinsvegar bara á einn lit og því ekki á fleti sem
eru samsettir úr fleiri en einum lit
Takið síðan eftir táknmyndunum sem birtast yfirleitt neðst á síðunni þarna má lýsa og dekkja myndir, snúa þeim upp og niður, til hægri og vinstri.
Síðan er hægt að tengja frá myndinni bæði með því að ýta á myndina og síðan á hnöttinn með hlekknum efst en einnig á formin ("hot spot") og þar með tengja í hluta úr mynd. Sjáið til dæmis muninn á því að ýta á nebbann á hvuttanum vinstra megin og vinstra eyrað á honum.
© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2002