Til að setja inn myndir veljum við valkostinn "insert - picture" og þar getum við valið hvort við ætlum að taka inn mynd úr skrá (file) eða úr myndasafni forritsins þ.e. ClipArt sem er sama safnið og hægt er að nota í öðrum Microsoft™ forritum. Bæði er hægt að nota úr myndasafninu sem er á harða diski tölvunnar sem og af Netinu sé tölvan nettengd þegar unið er með myndirnar.
Sé
valin mynd sem liggur á harða diski tölvunnar eða einhverjum þeim geymsludiski
sem er innan seilingar er eiginlega ekki meira að segja um það. En eigi að velja
mynd úr myndasafninu ClipArt þá birtist valmynd þar sem hægt er að leita eftir
leitarorði. Þetta sjáið þið á myndinni hér til vinstri. Síðan
takið þið eftir því að það eru valkostir fyrir neðan um hvar á að leita. Ef
smellt er á "Selected collections" þá birtast valmöguleikar eins og hér
til hægri. Farið yfir að það sé leitað að myndum eins og þið viljið. Til dæmis
leit á harða diskinum að hún sé úr eigin myndasafni og að Office
Collection sé valið þannig að hún leiti líka í ClipArt myndasafninu.
Síðan má velja líka valkostinn "Clips Online" sjá neðst til hægri og þá velja myndir af vef Microsoft™ en þar má finna ótrúlegustu myndir af öllu sem nöfnum tjáir að nefna og um að gera að nota þær sem allra mest. Náði í eina handa ykkur um hversu tíminn flýgur á Netinu;-)

Munið bara að allar myndir vefsins eiga síðan að vera vistaðar í möppunni "myndir".