FrontPage™ - Útlit vefsíðu, þema

Þema (Theme), (Format - Theme)
Þema er nokkuð þægilegt fyrir byrjendur ef útlit sem stendur til boða þykir laglegt. Auðvitað má hnika þessu til og jafnvel búa til sitt eigið útlit en einfaldast er að nota það sem er til. Hinsvegar er mikilvægt að hafa í huga að þemað yfirtekur allan vefinn sé valið að setja það á "all pages". Eigi að nota þema á fáar síður á vef þá þarf bara ein mistök til að þemað valti yfir allar síður og annað útlit eyðileggist. Því er best að vera alveg viss um að vefur á að hafa þema og nota hann á heilum vef. Munið að í FrontPage™ má skilgreina hluta úr vef sem "vef" og þá nota þema á þann hluta.

Sameiginleg svæði, (Shared - Borders)
Lítill tilgangur er með því að nota þema á vef ef ekki eru búin til sameiginleg svæði öllum vefsíðum sem nota þemað. Auðvitað má nota sameiginleg svæði án þema en varla skynsamlegt að nota þema án sameiginlegra svæða. Sameiginlegu svæðin má setja á alla kanta vefsíðu. Algengast er að nota "haus" og þar má síðan setja titil sem er í mynd ef þema er valið og þá að hafa mynd eða texti sé myndin ekki valin eða þemað ekki notað. Þar undir má setja hnappa til að ferðast um vefinn (Insert - Navigation). Hnappana má einnig setja á vinstri kanti vefsíðunnar. Í fót vefsíðu má til dæmis setja hver semur síðuna og tengingu í nánari upplýsingar og þá birtist textinn sjálfkrafa á öllum síðum sem nýta þessi sameiginlegu svæði sem geta verið eins og þemað allar síður eða stakar síður. Af sömu ástæðum og áður er mælt með því að nota sameiginleg svæði annaðhvort á öllum vefnum eða ekki. Annars ber að fara gífurlega varlega svo ekki fari vinna forgörðum við að laga til eftir það ef mistök eiga sér stað og gleymist að merkja við að einungis eigi að nota sameiginlegu svæðin á tiltekinni vefsíðu.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001