Einn aðal kostur við vefsíðugerð er möguleikinn á að tengja í aðrar síður og ferðast þannig frá einni síðu á aðra. Með þessu verður nýtt samhengi til, í stað bókar áður þar sem yfirleitt er lesið í röð frá einni síðu á þá næstu við lestur eða eftir efnisyfirliti við uppflettingar. Nú verða oft til margar víddir í efnið.
Þegar tengja á í aðra síðu er texti eða
mynd skyggð og smellt á
sem
táknar tengingu út á Netið en þýðir í rauninni líka að tengja
úr
einni síðu á eigin vef yfir á aðra síðu. Hér til hliðar sjést skjámyndin sem
birtist þegar smellt er á hnöttinn. Þarna má velja síðu úr eigin vef eins og
áður er sagt eða setja inn fullt veffang (t.d.
http://www.mh.is )
Mikilvægt er að hagnýta tengingar milli vefsíðna sem best en til þess er nauðsynlegt að hafa skipurit vefsins á hreinu og nota "Navigation" valmyndina til að sjá hvernig þetta lítur út og síðan "hyperlinks" til að sjá hvort einhver tenging er ekki rétt.
Ef tengja á í netfang (póstfang) þá þarf að setja skipunina upp sem mailto:netfang@stadur.is eða smella á valkostinn "e-mail address" í glugganum sem birtist og slá síðan inn netfangið.
Einnig má tengja í stað innan skjals, þá er staðurinn sem stefnt er á fyrst merktur með bókarmerki "Insert - bookmark" og síðan má tengja í bókarmerkið með því að smella á hnöttinn og velja "Place in this document" þá birtist listi yfir bókarmerki sem hægt er að tengja í innan skjalsins.