Oft getur verið þægilegt að tengja í texta eða myndir innan sömu síðu. Þá er til dæmis hægt að hafa vallínu efst í síðu og notandinn getur smellt á valkostinn og stokkið neðar í síðuna. Þar er síðan hægt að láta tengil sem leyfir lesandanum að stökkva til baka aftur.
Til þess að gera þetta þá er fyrst farið á staðinn þangað sem menn vilja stökkva og valið:
Insert - bookmark
sem þýðir að setja e.k. "bókamerki" á staðinn þangað sem á að vera hægt að stökkva. Gætið þess vel að velja nafn sem er lýsandi fyrir staðinn þannig að auðvelt sé að velja nafnið síðar.
Skyggið síðan textann sem á að nota til að
stökkva á bókamerkið og veljið hnöttinn með tenglinum
eða:
Insert - hyperlink
Smellið þar á valkostinn bookmark og veljið "bókamerkið" sem á að stökkva til. Ef þið viljið skrifa þetta beint þá er rithátturinn:
#bókamerki
Þar sem "bókamerki" stendur fyrir það nafn sem valið var.
Hér á þessari síðu eru tvö bókamerki. Annars vegar efst fyrir framan titiltextann og það bókamerki heitir efst og hinsvegar neðst fyrir framan höfundarréttarmerkið fyrir framan nöfnin okkar Ásrúnar og það heitir copyright. Þessi síða er hinsvegar það stutt að á mörgum skjám þá er allur textinn sjálfsagt á sömu síðunni og þá sést ekki hvað gerist þegar hoppað er fram og til baka.