FrontPage™ - vefur og vinnuumhverfi

Hugtakið "vefur"
Í FrontPage™ hefur orðið "vefur" sérstakt gildi ólíkt öðrum vefsíðugerðarforritum. Vefur er e.k. eining eða heild í FrontPage™ . Sumir gera marga vefi á tölvunni sinni til að hafa mismunandi útlit eða láta ákveðinn hluta vefsins lúta sérstökum lögmálum. Því verður stundum vísað í orðið "vefur" þegar ekki er átt við heildarvef heldur vefhluta sem er skilgreindur sem sérstakur vefur (eða heild) í FrontPage™ .

Vinnuumhverfi
 

Hægt er að skoða vefinn út frá ýmsum hliðum. Hér eru táknin sem gefa þessa möguleika.
Hér er hægt að vinna með ákveðna vefsíðu. Best er að vera ekki með meira en eina síðu opna í einu til að tryggja að ekkert fari á mis. Sérstaklega er þetta mikilvægt ef fleiri en einn eru að vinna í sama vefnum. Í XP útgáfunni er þetta þó talsvert þægilegra en í eldri útgáfum forritsins því þá má sjá á flipum efst hvaða síður eru opnar og ferðast milli þeirra.
Þessi valkostur er góður þegar vinna á með skipulag og skjöl. Hér má fá gott yfirlit yfir vefinn sem heild og afrita skjöl og flytja fleiri en eitt í einu. Hér er þó rétt að benda á möguleikann að vinna með s.k. "Folder List" (þennan má sjá og fela með View - Folder List.
Upplýsingar um vefinn, til dæmis um tengla, hvort síður eru hægvirkar, fjölda síðna og fleira. Þetta er yfirleitt ekki notað mikið nema þegar vefir verða stærri og flóknari. Þó er alltaf skynsamlegt að fylgjast með vefnum sínum.
Navigation er yfirlit yfir skipurit vefs. Ef vefsmiðurinn notar þennan lið og raðar vef í skipurit má fá gott yfirlit. Ef þema (Theme) er notað þá ræður stilling síðnanna hér því hvernig hnapparnir birtast og hvernig er ferðast um vefinn.
Séu tenglar (links) mikið notaðir milli síðna í vef þá er hægt að velja sér síðu og skoða hana hér og sjá hvort tengingar eru allar í lagi eða hvort tengingu vantar milli einhverra síðna og þær standi því einar (broken link)..
Hér er hægt að skipuleggja n.k. verkbókhald. Setja inn minnisatriði um hvað þarf að gera eða ef margir eru um vef þá gefa yfirlit yfir hvað er að gerast, setja öðrum fyrir (eða biðja um) og láta vita þegar tiltekið verk er búið.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001