Frágangur og viðhald vefa

Segja má að vefir séu aldrei tilbúnir eða búnir þannig að frágangur er e.t.v. of sterkt orð en á einhverjum tímapunkti þarf þó að ákveða að vefur hafi náð þeirri mynd að hann sé vel birtingarhæfur. Best er ef vefir eru birtingarhæfir frá byrjun og lesandinn geti síðan séð valkosti og nýtt efni birtast jafn óðum. 

Á sama hátt má segja að vefir séu aldrei tilbúnir og því sé mikilvægt að halda þeim við, bæta við efni, láta vefinn vera lifandi. Ef vef er ekki breytt neitt nokkru sinni þá er ólíklegt að hann njóti vinsælda nema að hann fjalli um efni sem er alltaf eins s.s. lög eða reglur sem þarf að nota í atvinnuskyni en þá er markmið vefsins einfaldlega það að hafa einhverjar fastar upplýsingar á Netinu. 

Við yfirferð á því hvort vefur er tilbúinn og snyrtilegur er gott að fara yfir hvort öll skráarheiti og möppur séu ekki með séríslenskum bókstöfum. Þeir geta valdið erlendum lesendum erfiðleikum og því best að sleppa þeim þar. Eru vefsíður í möppum á skipulegan hátt? Allar myndir á sama stað þannig að ekki sé hætta á því að verið sé að vista sömu myndina oft á einum og sama vefnum og vísa í hana á ýmsa vegu. Þetta er mikilvægt því annars verður erfitt að breyta til ef þarf að skipta um mynd. 

Oft er gott að láta vita hvenær vef var síðast breytt, en það getur líka verið letjandi ef það líður einhver tími á milli þess sem vef er breytt. Metið það hverju sinni hvort það er eftirsóknarvert.

Takið út úrelta hluti því ekkert er leiðinlegra en sjá vefi sem eru með dóti sem augljóslega er úrelt og óviðeigandi eins og til dæmis "Næsta föstudag verða tónleikar ..." og þessi föstudagur er löngu liðinn. Ágætis vinnuregla er að líta yfir vefi a.m.k. vikulega til að sjá hvort þeir vinni rétt eða hvort eitthvað mætti betur fara. 

Munið að hafa netfang sem lesendur geta skrifað til ef þeir verða varir við eitthvað sem má betur fara eða vilja ná sambandi við ykkur.

Ef vefur er úreltur er betra að taka hann í burtu en hafa hann á Netinu.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001