HTML Verkefni 4

Besta leiðin til að skoða html kóða vefsíðna er að fara á vefsíðu sem manni líst vel á og velja "view - source". Þá birtist html kóði vefsíðunnar og hægt að lesa sig í gegnum kóðann og reyna að átta sig á því hvaða skipun gerir hvað.

Veldu tvær til þrjár mismunandi síður og reyndu að lesa úr kóðanum og átta þig á því hvað hver skipun gerir. Ef þú skilur hana ekki gáðu hvort þú finnur upplýsingar í tenglunum hér á vefnum eða í lesefninu.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001