Skipurit vefs
|
Þegar vefur er hannaður í upphafi er mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvernig ætlunin er að byggja hann upp til framtíðar. Oft er vaðið af stað við gerð einstakra vefsíðna án þess að skipuleggja hvernig heildin á að vera. Þetta getur kostað vinnu síðar ef flytja á síður á aðra staði og tilvísanir í þær verða rangar einnig er líklegt að þið þurfið að endurvinna talsvert ef síðar kemur í ljós að uppbyggingin hefði verið betri öðruvísi. Nú er ekki líklegt að byrjendur geti hannað vef til enda í fyrsta sinn því má gera ráð fyrir að þið þurfið að taka hann upp og endurskipuleggja síðar. Hinsvegar mun það áreiðanlega spara vinnu að byrja á skipulaginu og þið þurfið síður að leggja mikla vinnu í endurskipulag. Fyrsta síðan á vef er n.k. yfirlitssíða um það sem er á vefnum út frá honum getur lesandinn síðan fundið annað efni sem er á vefnum. Segja má að skipulag vefs sé ekki ósvipað skipulagi á gögnum í tölvum. Oft hefur verið vísað í hugmyndir að uppbyggingu skjalaskápa til að skilja hvað á að vera hvar. Þið getið hugsað ykkur að fyrsta síðan sé framhliðin á skjalaskápnum og síðan skipuleggið þið hvað þið setjið í hverja skúffu. Í hverri skjalaskúffu geta síðan verið nokkrar möppur. Eðlilegt er að setja allar myndir á einn og sama staðinn. Ástæðan er fyrst og fremst sú að það er ekki ólíklegt að þið viljið nota sömu myndina oftar en einu sinni. Þá er gott að geta gengið að henni á sama stað. Síðan er ekki síður mikilvægt að vera ekki að vista sama hlutinn víða á vefnum. Skipuleggið hvar myndir, línur, bakgrunnur, hnappar og slíkir hlutir eiga að vera staðsettir. Setjið niður fyrir ykkur (gjarnan á blaði) hvernig vefurinn á að vera uppbyggður. Einnig gæti verið skynsamlegt ef fleiri en einn eru að vinna að sama vefnum að þið skiptuð með ykkur verkum að einhverju leyti þ.e. einhver beri meiri ábyrgð á ákveðnum þætti vefsins en annar. |
|
Lára Stefánsdóttir, lastef@ma.is |