Gröf
eru góð leið til að sýna tölur á myndrænan hátt t.d. niðurstöður
úr alls konar könnunum og mælingum. Þegar gröf eru gerð þarf að hafa í
huga að lesandinn geti skilið þau og því bera að varast að ofhlaða
gröfin af upplýsingum. Það er betra að gera tvö gröf sem að lesandinn
skilur frekar en að setja svo mikið af upplýsingum í eitt graf að notandinn
getur ekki lesið úr því.
Gröf
eru hentug til að sýna þróun yfir tíma og er þá tíminn hafður á
x-ásnum og einngi til að sýna skiptingu milli atriða t.d. í prósentutölur.
Til að gera gröf er t.d. hægt að nota Excel™ og PowerPoint™ en hér
verður lögð áhersla á Excel.
Ef
gera á graf og setja á vefsíðu þarf að gera grafið að mynd.
Einfaldast að fara í Excel forritið og gera þar viðeigandi graf sem síðan
er flutt yfir í myndvinnsluforrit og geymt á
.gif eða .jpg. formi.