Verkefni 1

Ræstu Excel og skrifaðu í A-dálk a, b, c, d, e, f og í B dálk 10, 30, 45, 55, 25, 5. Notðu þetta síðan til að gera graf (hér má finna ítarefni í nánari leiðbeiningar fyrir þá sem ekki eru öryggir með hvernig graf er gert í Excel). Settu inn fyrirsögn og skýringar á x- og y-ása.

Þegar þú ert ánægð(ur) með grafið þitt þá skaltu smella á það og taka afrit (Edit/Copy). Síðan opnar þú Paint forrtitið sem er á flestum tölvum (Start/Porgrams/Accessories/Paint) og velur líma (Edit/Paste) og á þá grafið þitt að koma í ljós.

Til að vista grafið sem mynd er valið File/Save as og passað að velja í Save as type reitnum annað hvort .gif form eða .jpg. Síðan gefur þú myndinni nafn og velur svæði til að vista hana á. Gott er að hafa sér möppu undir myndir.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001