Tölvupóstur

Verkefni 2

Vertu búin(n) að lesa um samskiptahæfni áður en þú ferð í þetta verkefni.

Mikilvægt er að koma góðu skipulagi á póstinn sinn. Þeir sem vinna mikið með póst fá 50-100 bréf á dag og þá reynir á. Þetta á kannski alls ekki við þig núna en þetta er vinnulag sem mikilvægt er að kunna að beita á virkan hátt.

  1. Búðu til möppu (folder) í tölvupóstinum þínum fyrir þennan námsáfanga með nafni hans. (T.d. UTN102 eða UTN103)
  2. Flyttu öll bréfin sem tilheyra námsáfanganum í þetta hólf.
  3. Búðu til möppu fyrir einkabréf frá sessunaut þínum.
  4. Búðu til sjálfkrafa flokkun (filter, rule) þannig að bréf sem eru frá honum til þín lendi í þessu hólfi sem og bréf frá þér til hans.
  5. Biddu sessunautinn um að senda þér bréf til að prófa. Farðu yfir að vel hafi tekist til en reyndu aftur ef svo er ekki. Gerðu slíkt hið sama fyrir hann.
  6. Settu upp sjálfkrafa flokkun (filter, rule) þannig að öll bréf sem tilheyra þessum námsáfanga lendi þar sjálfkrafa. Gættu þess vel að póstur sem ekki tilheyrir honum lendi þar ekki líka.
  7. Sendu bréf á póstlista áfangans ef hann er til og sjáðu hvort bréfið lendir á réttum stað. Annars mun kennari síðar senda þér bréf sem á þá að lenda á þessum stað.

Gangi þér vel!

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2000