Siðareglur í tölvupósti

Flestum reynist nokkuð auðvelt að senda tölvupóst og lesa. Hinsvegar er ekki öllum ljóst hvað telst kurteisi eða almennar siðvenjur. Ennfremur reynist mörgum flókið að vinna með öðrum í tölvupósti, hafa hröð og góð samskipti og þurfa ekki á síma að halda eða hitta viðmælandann í eigin persónu. Hér má auðvitað ekki fara út í öfgar og halda að ekki sé mælt með því að hitta fólk, enda er það alltaf gaman, heldur hitt að ef við ætum að standa okkur á sviði fjarvinnslu og fræðilegrar samvinnu innanlands og milli landa þá þurfa menn að kunna til verka.

Öskur

Ef þið skrifið með upphafsstöfum TIL DÆMIS SVONA þá skilur vanur Internetnotandi það sem að það sé verið að öskra á hann og móðgast alveg eins og þú stæðir fyrir framan hann og öskraðir. Rólyndasta fólk getur farið af límingunni við það og rétt að láta upphafsstafina vera nema bara þar sem þeir eiga við;-)

Broskarlar

Oft er erfitt að koma til skila líkamstjáningu sem oft segir áheyrandanum hvort verið sé að segja hlutina í gríni eða alvöru. Til þess að leysa þetta mál eru notaðir s.k. broskarlar í tölvupósti. Lesið endilega um þá og notið í tölvupósti.

Hugsa

Þegar hugsað er í tölvupósti er það yfirleitt táknað með: .... punktalínu eða hmm.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2000