Í verkefni 1 svaraðir þú spurningunum 4 í Kidlink. Nú skaltu skoða svör þeirra sem hafa þegar sent inn svör við spurningunum fjórum og gáðu hvort þar eru margir með sömu áhugamál og þú. Leitaðu að svari við spurningum frá ungmennum frá því landi sem þig langar mest að ferðast til, eru þau lík því sem þú gætir vænst af íslenskum krökkum?
Finndu hvaða krakkar eru á þínum aldri í verkefninu athugaðu að sum geta hafa svarað spurningunum fjórum þegar þau voru yngri en eru núna á þínum aldri. Því er vert að leita á annan hátt í eldri gögnum en þeim nýrri.
Fylltu út í töflurnar hér að neðan það sem þú finnur:
| Ungmenni í Kidlink með sama áhugamál: | ||||
| Nafn | Aldur | Land | Áhugamál | Annað |
| Ungmenni frá landi sem mig langar að ferðast til: | ||||
| Land | Nafn | Aldur | Áhugamál | Líkt okkur? |
| Ungmenni á mínum aldri: | ||||
| Nafn | Aldur | Land | Áhugamál | Annað |