Aðgengi og áskriftir

Þó vefurinn á Netinu sé umfangsmikill og þar sé margt að finna þá er ekki þar með sagt að hægt sé að skoða allt sem þar er. Fjölmargir staðir eru varðir af lykilorðum, prófunum á því hver er að koma inn, kóðum sem fara milli tölva og fleira. Einnig er mikilvægt þegar fólk er að versla á Netinu að það sé tryggt að kreditkortanúmer og aðrar viðkvæmar upplýsingar fari ekkert annað þar sem hægt er að misnota þær upplýsingar. Þrátt fyrir að allt sem í mannlegu valdi stendur sé gert til þess að verjast því að brotist sé inn í upplýsingar þá er aldrei hægt að tryggja það fullkomlega. Á sama hátt og þrátt fyrir að alskyns þjófavarnarbúnaður sé settur á hús eða öryggishólf þá er ekkert öruggt þar heldur. Því er mikilvægt að fara mjög varlega með að dreifa upplýsingum sem hægt er að misnota á Netinu.

Þó aðgengi að ákveðnu efni sé stundum varið með lykilorðum til að tryggja að óviðkomandi komist ekki inn á ákveðin svæði þá þarf notandi einnig oft að skrá sig á vefi til að fá þar upplýsingar án þess að þurfa að borga fyrir það. Þetta er oft gert til að fylgjast með því hverjir eru að fara um vefinn og einnig að það sé ekki verið að leggja inn efni, s.s. í umræður og þessháttar, nema gefið hafi verið upp gilt netfang. Þetta er þó ekki neitt sem tryggir öryggi nema mjög takmarkað því það er auðvelt á sumum stöðum að ná í netfang sem virkar sem gilt fyrir vefþjónustum en er í rauninni þannig úr garði gert að ekki er hægt að finna hvaða notandi er með netfangið. En þrátt fyrir að ekkert sé öruggt í þessum heimi þá má kannski ekki vantreysta öllu og öllum fremur en að vantreysta öllu fólki sem maður hittir því það gæti verið óvandað. En aldrei er of varlega farið og gott að hafa í huga að það er ekki endilega allt sem sýnist.

Oft er hægt að gerast áskrifandi að fréttabréfum eða upplýsingum. CNN fréttastofan er til dæmis með þjónustu þar sem hægt er að skrá sig og fá tölvupóst með áríðandi fréttum (breaking news) um leið og þær gerast. Sumir fá upplýsingar daglega um stöðu á bankareikningi eða umræðum sem þeir eru áskrifendur að þ.e. af póstlistum

Segja má að netfang hvers einstaklings sé persónulegt auðkenni hans eða aðgangur að honum á Netinu. Þangað berast upplýsingar og efni, sumt sem óskað er eftir en stundum ruslpóstur sem enginn skilur af hverju hefur borist. Það getur verið vegna þess að einhver hefur fundið netfangið og skráð í gagnasafn netfanga sem hægt er að senda auglýsingar til. Einnig gæti verið að vefsíða hafi verið heimsótt sem er með vafraforriti (cookies) sem skráir netfang og sendir það áfram þar sem það er síðan notað til þess að senda upplýsingar.

© Ásrún Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir 2001