Borgarnet
Borgarnet (MAN, Metropolitan Area Network) einkennist af því
að en fjarlægðir eru þó nokkrar á milli tölva eða allt að 100 km og afköstin
eru mun meiri en í staðarneti.
Borgarnet er oft notað til að tengja saman nokkur staðarnet. Oftast
er notast við ljósleiðara eða örbylgjusenda til að tengja
saman tölvukerfi í borganeti. Fjarvinnslukerfi sem hafa verið sett upp
og tilraunir sem verið er að gera með örbylgjusenda fyrir heilu blokkirnar eða
íbúðahverfin er dæmi um borgarnet hér á landi.
©Ásrún Matthíasdóttir og Lára Stefánsdóttir, 2001