Leit að skjölum á diski
Það er nokkuð algengt að notendur leggi frá sér skjöl á harða disk tölvunnar án þess að vita eða muna hvar skjalið er geymt. Þetta er afar hvimleitt og því er mikilvægt að vera vel meðvitaður um hvar skjölin eru geymd hverju sinni.
Í Windows™ er hinsvegar verkfæri til þess að leita að skjölum í þeim geymslum sem eru í tölvunni. Geymslurnar eru venjulega kallaðar "drif" og þeim er skipt upp á eftirfarandi hátt:
| Drif | |
| A | Disklingadrif (stundum líka B ef drifin eru tvö) |
| C | Harði diskur tölvunnar |
| D | Annar harður diskur eða geisladrif (Stundum er E drif líka fyrir geisladrif eða brennara) |
| F...Z | Yfirleitt heimasvæði á móðurtölvu sem tölvan er tengd. Auk þess að hafa bókstaf getur drifið haft nafn. |
Sjá nánari útskýringar á um skjalageymslur
Á hverju drifi er síðan hægt að búa til möppur (folders) og geyma í þeim skrár (files). Möppur eru einungis hólf til að geyma skjöl eða forrit en skrár eru skjöl, forrit, myndir eða önnur gögn sem geymd eru í tölvunni.
Til að leita að skjölum er best að nota leitaraðgerð Windows™ en hún er valin með aðgerðunum:
start - search
Þá birtist þessi mynd:

Þarna má sjá nokkur atriði sem hér eru skýrð nánar:
|
Heiti |
|
|
Search for files or folders named |
Leita að skrám með þessu heiti. |
|
Containing text |
Skjöl sem innihalda þennan texta |
|
Look in |
Hvar á að leita (á hvaða drifi) |
|
Date, Type, Size |
Aðgerðir til að afmarka leit enn frekar s.s. skjöl sem búin eru til frá ákveðinni dagsetningu til ákveðinnar dagsetningar. Af ákveðinni gerð eða stærð. |
Þegar búið er að skilgreina leitina þá er ýtt á hnappinn "Search Now" sem þið sjáið á myndinni.
Stundum er ekki gott að muna hvað skrárnar hétu nákvæmlega sem verið er að leita að. Best er að koma sér upp kerfi á því hvað skrárnar eru skírðar til að eiga auðveldara með að finna þær. Ef við erum hinsvegar ekki viss má prófa s.k. algildisstafi sem eru:
* Allir stafir
? Einhver einn stafur
Þannig má leita að:
ens*.*
til að finna öll skjöl sem byrja á bókstöfunum ens en enda á hverju sem er og geta verið hvaða skjalagerð sem er. Ef við hinsvegar myndum skrifa:
ens*.doc
(Nánar um nöfn á endingum)
þá myndi tölvan leita að öllum skjölum sem byrja á ens og hafa endinguna doc sem þýðir að skjalið er ritvinnsluskjal gert í Word™