Tölvupóstur
Verkefni 1
Þú hefur nú fengið aðgang að tölvupósti. Glöggvaðu þig á
eftirfarandi þáttum:
- Hvaða netfang hefur þú?
- Hvernig er póstforritið þitt ræst?
- Þarftu að kynna þér einhverjar stillingar? Athugaðu að þó
kennarinn eða kerfisstjórinn þinn hafi e.t.v. sett póstforritið upp í
upphafi er gott að glöggva sig á þeim til að geta bjargað sér ef
eitthvað fer úrskeiðis.
- Skoðaðu algengustu hnappa og valkosti og reyndu að átta þig á þeim
meginþáttum sem þar eru.
Þegar þú hefur skoðað forritið þitt svolítið þá er að prófa að
beita því. Spreyttu þig á eftirfarandi aðgerðum:
- Sendu sjálfum þér póst á þitt eigið netfang
- Settu undirskrift eða fót (signature, footer) á bréfið þitt.
Þar er rétt að hafa:
Einhverskonar kveðju, t.d. bless, bless, eða kær kveðja,
Nafnið þitt undir
Netfangið þitt (athugaðu að netfangið þitt sést ekki
sjálfkrafa í öllum póstforritum
Skólann þinn
Veffang þitt (ef þú ert með það) annars veffang skólans.
- Sendu þér aftur bréf til að sjá hvort undirskrift bréfsins
(fóturinn) kemur rétt.
- Sendu bréf annað hvort á sameiginlegan póstlista eða til
kennara eftir því sem kennari þinn ákveður. Í bréfinu skaltu láta
koma fram:
- Hvort þú hefur áður notað póstforrit og þá hvaða forrit og í
hvaða tilgangi
- Eitthvað almennt um tölvureynslu þína. Tölvuleikir, vefsíðugerð,
tónlist eða annað.
- Væntingar þínar til þessa áfanga. Hvað viltu kunna þegar áfanganum
lýkur.
- Notaðu broskarl eða broskarla í bréfið.
- Svaraðu bréfi frá samnemanda um ofangreint efni og segðu hvort þú
kannt það sama eða langar að læra það sem hinn kann. Sé ekki
sameiginlegur póstlisti eða annar sameiginlegur vettvangur, svaraðu þá
eigin bréfi úr lið 7 og sjáðu hvernig það lítur út.
Ef þú ert ekki viss hvort þú sért búin(n) að ná tökum á því að
lesa, skrifa og svara tölvupósti, nýttu tímann vel til að æfa þessi
atriði.
Gangi þér vel!
© Ásrún
Matthíasdóttir Lára Stefánsdóttir
2000