Tölvupóstur er orðinn ómissandi þáttur í lífi og starfi í dag til að hafa samskipti við fólk innanlands og erlendis. Hann er fljótur að berast tölva á milli, hver sem er þarf einungis tölvu, mótald og símalínu til að tengjast móðurtölvu sem tengd er Internetinu. Tölva á Internetinu notar s.k. TCP/IP samskiptastaðal og tölvupóstur manna á milli er pakkaður samkvæmt þeim staðli til þess að tölvan sem tekur á móti geti skilað póstinum á réttan stað. Hvert bréf getur farið í mörgum bútum milli tölva og því þarf móttökutölvan að púsla pökkunum saman til þess að við venjulegir lesendur skiljum það.
Hver notandi á Internetinu hefur sitt eigið netfang (e-mail address), það er ævinlega byggt upp af þremur þáttum:
| notandi (einungis einn með hvert heiti á hverri móðurtölvu) | Nafn móðurtölvu | Land |
| Dæmi: asrun |
Dæmi: ismennt |
Dæmi: is |
Þar með er netfang Ásrúnar komið þ.e. asrun@ismennt.is
Athugið að heiti móðurtölvunnar gæti þýtt að það er ein miðlæg móðurtölva með þetta heiti en síðan margar móðurtölvur tengdar henni.
@ táknið er yfirleitt túlkað sem á (at) þ.e. asrun á ismennt sem þýðir notandinn asrun á tölvunni sem ber heitið ismennt. Síðast kemur landið og fyrir Ísland er það is. Skoðið hvaða skammstafanir eru í öðrum löndum. Takið eftir að það eru aldrei séríslenskir stafir í netföngum, þetta er vegna þess að enskt stafróf er notað í netföngum auk _ undirstriks og . pukts.
Mörg og mismunandi póstforrit eru í notkun á markaðnum og mörg eiga eftir að koma. Sem dæmi má nefna: Eudora™, Microsoft Office™, Outlook Express™, einnig er oft hægt að lesa póst af vef. Sumir skólar bjóða nemendum að lesa skólapóstinn sinn af vefnum. Athugaðu hvernig því er háttað í þínum skóla. Annars má líka nota vefi eins og Mailstart.com til að lesa póstinn sinn.
Ef
þú hefur ekki netfang þá eru hér leiðbeiningar um hvernig er hægt að fá
sér netfang hjá http://www.visi.is/ en
mörg önnur fyrirtæki bjóða upp á ókeypis netfang t.d. http://www.hugi.is/, http://www.net.is/, http://www.strik.is/,http://www.hotmail.is/,http://www.yahoo.is/ og flestir bankar.
| Verkefni 1 Tölvupóstur |
Verkefni 2 Flokka póst |
Verkefni 3 Netfang af Netinu |
Ítarefni:
Emailaddresses.com Yfirgripsmikið efni um nánast allt sem tengist tölvupósti.
Mailstart.com Vefur sem sýnir þér tölvupóstinn þinn og gerir þér kleift að svara honum.