Siðareglur á Netinu:
- Gerðu
þér grein fyrir markmiðunum Netnotkuninni
- Hvernig
best er að bera sig að, fer eftir markmiðum þínum. Vefskoðarar bjóða
upp á margskonar möguleika sem nauðsynlegt er að kynna sér til að auðvelda
alla umgengni um Netið
- Vanda
þarf til tölvusamskipta eins og annarra mannlegra samskipta.
- Ekki
senda særandi eða meiðandi skilaboð út á Netið. Ekki dreifa persónulegu
efni frá öðrum. Á netinu gilda almennar kurteisisreglur eins og annar
staðar í mannlegurm samskiptum.
- Texti
sem þú skilur eftir á Netinu getur verið lesinn af mörgum.
- Mundu
að það sem þú skrifar á Netið getur komið fyrir augu annarra en
þú ætlaðir í fyrstu og því þarf að vanda orðaval og efnistök.
Ekki gefa upp persónulegar upplýsingar til ókunnugra á Netinu.
- Kynntu
þér hvaða reglur gilda um Netnotkun í þínum skóla
- Eðlilegt
er að nemendur geti skoðað síður er tengjast þeim viðfangsefnum sem
þeir eru að vinna að hverju sinni en oftast bera Net skóla ekki að
nemendur séu að horfa á sjónvarp, sækja tónlist, hlusta á útvarp eða
sækja stórar gagnaskrár í
gegnum Netið. Skóli þarf að borga fyrir gagnaflutning, þ.e.
það efni sem berst um Netið í skólann, kostnaður við flutning á
þessum gögnum er mikill og því nauðsynlegt fyrir nemendur að taka
tillit til þess.
- Ekki
er æskilegt að senda keðjubréf og stórar gagnasendingar
með tölvupósti.
- Stórar
gagnsendingar, t.d. myndskeið, geta truflað aðra notendur Netsins en
einnig getur móttakandinn lent í vanda ef tölvutenging hans er hægvirk.
- Í
flestum tölvukerfum er hægt að fara yfir og skoða allt sem
notendur gera.
- Fylgst
er með Notenotkun í flestum skólum en einnig utan skóla og um
notkunina gilda almenn lög í landinu.
·
Ekki senda, sækja eða geyma efni sem er ólöglegt
eða óæskilegt.
o
Hér er t.d átt við. klám, kynþátta-, hryðjuverka- og
ofbeldisáróður.
Munum að Netnotkun í skólum
er til eflingar námi og kennslu með
greiðum aðgangi að upplýsingum og samskiptum. Það er ekki rétt að engar
reglur gildi í Netheimum. Netið er nýr miðill sem gefur okkur sviðgrúm til
nýrra samskipta en þau verða að vera innan þeirra reglna sem að gilda utan
Netsins. Við verðum að virða umferðarreglur Netsins
og læra að taka tillit hver til annars.
©
Ásrún Matthíasdóttir Lára
Stefánsdóttir 2001