« Mér fer fram! | Aðalsíða | Brúðurin dóttir mín »

Miðvikudagur 23. mars 2005

Besta afmælisgjöfin

Ég átti afmæli 9. mars eins og Bobby Fisher, besta afmælisgjöfin var frá Gísla mínum nýtt lag sem heitir Ef. Ég er búin að setja það hérna inn ef einhver hefur áhuga á að heyra þetta fallega lag. Ég skil aldrei hvernig hægt er að semja svona ljúf lög eins og Gísli minn gerir. Ég er óttalegur gaddavír;-) Annars erum við á kafi við að æfa lög sem við erum búin að semja fyrir brúðkaupið hennar Hildu Jönu og hans Ingvars Más á laugardaginn. Þar er eitt lag sem fjallar um þegar ég varð ófrísk af Hildu Jönu (læknirinn laug í mig að ég væri ófrísk og ég hætti að taka pilluna....), annað skondið og skemmtilegt um þau og svo eitt voða ljúft brúðkaupsdagslag sem þau geta bara dansað við - enda búin að fara í æfingar;-)

kl. |Tilveran

Álit (3)

Ólína frænka:

Þetta er aldeilis fallegt!

Fimmtudagur 24. mars 2005 kl. 17:41

Já er það ekki bara;-)

Föstudagur 25. mars 2005 kl. 19:07

Fífa sys:

Þetta er frábær gjöf Lára !!

Miðvikudagur 30. mars 2005 kl. 00:47

Liðinn er sá tími sem hægt er að gefa sitt álit. Hafðu samband ef þú vilt koma einhverju á framfæri

Lára Stefánsdóttir
Lára Stefánsdóttir lara[at]lara.is

www.flickr.com
Lára Stefánsdóttir
Brimnesvegur 24
625 Ólafsfjörður
Ísland / Iceland
GSM: +896 3357
Email: lara [at] lara.is


Áskrift að vefdagbók Áskrift að vefdagbók

©1992 - 2011 Lára Stefánsdóttir - Öll réttindi áskilin / All rights reserved.